Vel heppnað frumkvöðla- og fyrirtækjamót

3. október 2023

Nýsköpun í Vestri, frumkvöðla og fyrirtækjamót á Vesturlandi, var haldið í Hjálmakletti föstudaginn 29. september síðastliðinn.

55 frumkvöðlar og fulltrúar fyrirtækja á Vesturlandi voru skráðir til leiks en fyrir lá skemmtileg og fjölbreytt dagskrá. Blandað var saman Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands, heimsókn í Kviku, frásögnum frumkvöðla og æfingum til að styrkja eigið sjálf í frumkvöðlaumhverfinu og fyrirtækjarekstri. Dagurinn í heild sinni var sannkölluð veisla fyrir frumkvöðla og ljóst er að mikil gróska er í nýsköpunarumhverfi á Vesturlandi. Frumkvöðlamótið Nýsköpun í Vestri er samstarfsverkefni Nývest, Gleipnis nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir, framkvæmdastýra Gleipnis – nýsköpunar- og þróunarseturs, setti daginn en hún var ein af skipuleggjendum mótsins.

Páll Snævar Brynjarsson, framkvæmdarstjóri SSV, opnaði Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands en Svala Svavarsdóttir, verkefnastjóri Uppbyggingarsjóðs Vesturlands afhenti styrki ásamt Helgu Guðjónsdóttur og Ólöfu Guðmundsdóttur. Að þessu sinni fengu 11 verkefni styrk, hvert öðru áhugaverðara. Þar á meðal hlaut Gleipnir styrk fyrir fýsileikakönnun matarsmiðju á Hvanneyri í samstarfi við Kristján Thors stofnanda Vegangerðarinnar. Við óskum öllum styrkhöfum innilega til hamingju og hlökkum til að sjá útkomur verkefnanna.

Þær Fida Abu Libdeh frumkvöðull, stofnandi GeoSilica og stundakennari við Háskólinn á Bifröst og Hörn Halldórudóttir Heiðarsdóttir frumkvöðull og verkefnastjóri hjá Transition Labs mættu eftir hádegið og miðluðu af reynslu sinni af stofnun sprotafyrirtækja og mikilvægi seiglu í frumkvöðlastarfi enda er eðlilegt að fá tíu eða fleiri nei áður en hið verðskuldaða já lætur sjá sig.

Dagurinn var síðan brotinn upp með heimsókn í Kviku, skapandi rými í hjarta menntaskóla Borgarfjarðar, að undangenginni kynningu frá Braga Þór Svavarssyni sem er skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar. Kvika hefur sannað gildi sitt sem mikilvægur þáttur í kennslustarfi skólans og bjóðast nú opnir tímar á þriðjudögum sem Vestlendingar geta nýtt sér til frumkvöðlastarfs.

Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi Rata og framkvæmdastjóri Framvís, steig á stokk í upphafi dags með æfingum í því að koma hugmyndum sínum á framfæri og þora að tala um þær. Í lok dags leiddi hún okkur svo í gegnum svokallað Business Model Canvas og önnur mikilvæg verkfæri sem gott er að nýta sér í fyrirtækjarekstri. Hér fengu frumkvöðlar og fyrirtækjaeigendur smjörþefinn af því sem koma skal í Vesturbrú, 6 vikna nýsköpunarhraðli á Vesturlandi sem haldin verður í vetur. Nánari upplýsingar um Vesturbrú munu birtast von bráðar.

Nývest, Gleipnir nýsköpunar- og þróunarsetur á Vesturlandi og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi þakka öllum þátttakendum fyrir komuna á viðburðinn. Samþætting ólíkra dagskrárliða sem allir tengjast nýsköpun reyndist skemmtileg aðferð til að leiða saman frumkvöðla í landshlutanum. Þessi mikla þátttökuskráning sýnir og sannar að máttur frumkvöðlastarfsins í landshlutanum er mikill og bjart framundan í nýsköpun á Vesturlandi.

Gísli Gíslason stjórnarformaður Nývest

Svava Björk Ólafsdóttir frá RATA stýrði vinnustofum

Fida Abu Libdeh stofnandi GeoSilica

Hörn Halldórudóttir Heiðarsdóttir frumkvöðull og verkefnastjóri hjá Transition Labs

Umræður og verkefni á borðum

Kvikan skoðuð

Kaffi og spjall
Kaffi og bjórbíll Bara Bistro