

Í siðustu vikur sóttum við málþingið „Hver er staða fæðuöryggis á Íslandi?“ þar sem kynntar voru tvær mikilvægar skýrslur.🔹 Skýrsla Landbúnaðarháskóla Íslands eftir Torfa Jóhannesson um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu.🔹 Skýrsla Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands um neyðarbirgðir matvæla á Íslandi (höfundar: Sara Björg Guðjónsdóttir, María Guðjónsdóttir, Ólöf Guðný Geirsdóttir og Ólafur Ögmundarson).Niðurstaða: Staða fæðuöryggis á Íslandi er góð, en krefst verulegra viðbóta og markvissra aðgerða til að tryggja raunverulegt fæðuöryggi til framtíðar.Við hja Gleipnir viljum vinna með háskólum, atvinnulífi, sveitarfélögum og stjórnvöldum að því að breyta þessari þekkingu í raunhæfar lausnir og verkefni sem auka seiglu íslenska matvælakerfisins.