Gleipnir tók þátt í Iceland Innovation Week sem haldin var í síðustu viku og tók virkan þátt í fjölmörgum áhugaverðum fyrirlestrum og viðburðum tengdum nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Vikunni lauk með eigin viðburði Gleipnis, Ecobites, sem vakti mikla athygli og jákvæð viðbrögð.
Á Ecobites fékk hópur ungra sprotafyrirtækja tækifæri til að kynna starfsemi sína og hugmyndir. Meðal þeirra sem tóku þátt voru frumkvöðlar sem vinna að þróun á nýjum fæðubótarefnum, svepparækt og nýstárlegri ísgerð. Eftir kynningar fór fram lífleg umræða um sprotaumhverfið á Íslandi og hvernig hægt er að efla stuðning við ungt frumkvöðlafólk og nýsköpun í matvælageiranum.
Viðburðinum lauk með skemmtilegu smakk þar sem gestir gátu prófað afurðir sprotafyrirtækjanna – allt frá dýrindis ís og sveppum til heilsuvænnar fæðubótar.
Við hjá Gleipni erum þakklát fyrir frábæra þátttöku og hlökkum til að halda áfram að styðja við nýsköpun og sjálfbærar lausnir í íslenskum matvælaiðnaði.
#IcelandInnovationWeek #Ecobites #Gleipnir #Nýsköpun #Sprotar #Sjálfbærni #Frumkvöðlar #Matvælaframtíðin #FoodInnovation #StartupIceland