BISC-E keppnina 2026

12.06.2026

Síðastliðinn föstudag fór fram úrslitakeppni íslensku BISC-E (Bio-based Innovation Student Challenge Europe) á Hvanneyri, þar sem tvö öflug nemendateymi kepptu um titilinn Íslandsmeistari BISC-E 2026.Teymin sem tóku þátt voru:

• ArcticBioLoop – Sahaladin og Prince

• Grænir hagar – Svala og Sigga

Bæði teymi kynntu metnaðarfull og áhugaverð verkefni sem takast á við mikilvægar áskoranir á sviði sjálfbærni og lífhagkerfis. Að loknum kynningum og yfirferð dómnefndar var það einróma niðurstaða nefndarinnar að velja Græna haga sem sigurvegara BISC-E á Íslandi árið 2026.Við óskum Svölu og Siggu innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þökkum jafnframt ArcticBioLoop fyrir framúrskarandi þátttöku.Næsta skref hjá Grænum högum er þátttaka í evrópsku BISC-E keppninni þar sem landsmeistarar víðs vegar að úr Evrópu taka þátt í netkeppni. Fimm bestu liðin verða síðan valin til að kynna verkefni sín fyrir alþjóðlegri dómnefnd í Brussel í október. Þar verður keppt um titilinn Evrópumeistari BISC-E 2026 og aðalverðlaun að upphæð 5.000 evrur.Við óskum Grænum högum góðs gengis í áframhaldandi keppni og hlökkum til að fylgjast með þeim á alþjóðlegum vettvangi.